 |
Maurice Lacroix er eitt fremsta úramerki í heiminum í dag. Síðan fyrirtækið var stofnað 1976 hafa vinsældir þess aukist hraðar en nokkurt annað svissneskt úramerki og fæst það nú hjá yfir 4000 úrsmíðameisturum í 45 löndum um allan heim. Úrin eru heimsfræg fyrir fágaða hönnun, fullkomna tækni og gæði í gegn. |
 |
Ice cold er ný og spennandi skartgripalína sem er hönnuð og smíðuð hjá okkur. Ice cold línan á að minna á ís og jökla landsins |
 |
Delma er þekkt svissneskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur framleitt úr í 75 ár. Þetta eru vönduð úr sem við erum stolt af því að hafa getað boðið íslendingum í rúm 30 ár. Hönnunin er bæði klassísk og nútímaleg og gæðunum er ekki fórnað á kostnað verðsins. Auk þess að framleiða sína eigin úralínu framleiða þeir fyrir þekkt tískumerki eins og GUCCI, Bucherer, Switzerland og Harrods. |
 |
Alfex eru listræn svissnesk úr sem einkennast af hönnun augnabliksins. Þau eru margverðlaunuð fyrir framúrskarandi hönnun og eru gildi hönnunarinnar öryggi, ástríða, beinskeittni og ögrun. Því meira sem þeir blanda saman þessum gildum því meiri tískufyrirmyndir skapa þeir. Þannig geta þeir og þú þorað að vera öðruvísi! |
 |
Þegar Mercedes-Benz samþykkti að láta framleiða úr fyrir sig gerðu þeir aðeins eina kröfu, þeir vildu aðeins það besta! Aðeins tvö módel hafa verið framleidd fyrir almennan markað í takmörkuðu upplagi og er hvert úr númerað sem safngripur. Samhliða hafa þeir látið framleiða ódýrari módel sem fást í stærra upplagi og eru kærkomin eign bílaáhugamannsins. |
 |
Goebel postulinsverksmiðjan var stofnuð fyrir yfir hundrað árum eða nánar tilekið árið 1871 í þýskalandi. Fyrirtækið hannar og framleiðir handunnar postulínsvörur, glervörur og vörur úr öðrum gæðahráefnum. Meðal þess sem þeir framleiða er M.I. Hummel,, Artis Orbis, Postulínsengla, Gloria engla, Rosina Wachtmeister, MÁRA, Nina & Marco, Charlotte di Vita ofl.
|
 |
Handunnu postulínseglarnir eru til í mörgum litum, stærðum og gerðum. Hver engill er handunninn og málaður af færum reyndum listamönnum og eru aðeins 5 starfsmenn af 3000 starfsmönnum Goebel postulínsverksmiðjunnar sem hafa kunnáttu og hæfileika til að mála augun, sem er erfiðasti parturinn af máluninni. Þessar fallegu og gíngerðu postulínsstyttur eru vönduð og góð gjöf við öll tækifæri t.d. skírnargjöf, fermingargjöf, minningargjöf, afmælisgjöf, jólagjöf eða tækifærisgjöf.
|
 |
Gloríu englarnir eru sería sem samanstendur af himneskri stórhljómsveit þar sem hver engill á sitt hlutverk. Hljómsveitastjóri, flautuleikari, gítaleikari eða engill sem spilar á hörpu eru meðal annars í seríunni. Þetta eru stórglæsilegir og vandaðir postulínsenglar frá postulínsverksmiðju Goebel. |
 |
Artis Orbis er safn handunnina muna úr listasmiðjum Goebel postulínsverksmiðjunar. Í safninu er hægt að finna glæsilega postulínsmuni og glervörur í formi vasa, veggmynda, skála, kertastjaka, kaffibolla með frægustu verkum gömlu meistarana. Þeir eru eftirtaldir: Claude Monét, Auguste Renoir, Vincent van Gogh, Paul Cézanne, Paul Gauguin, Gustav Klimt, Sandro Botticelli, Leonardo da Vinci og Michaelangelo. |
 |
Rosina Wachtmaster er heimsþekkt austurrísk listakona og fæddist í Vínarborg árið 1939. Hún hefur fengið verðskuldaða viðurkenningu verka sinna í listagalleríum um allan heim, m.a í hinu fræga safni Porto Alegre. Verk hennar einkennast af töfrandi ljóðum, björtum og orkumiklum litum og kærleik. |
 |
Listaverk MÁRA eru þekkt í listasöfnum um allan heim og eru mjög einstök. Hlýjir og kraftmiklir litir gefa töfrandi fornum merkjum fulla orku en myndirnar gerir hún til að næra sálina, veita fólki gleði og losa um streitu hversdagslífsins. Hún blandar saman merkjum úr fornum menningum og sínum eigin auk þess að nota indiánaljóð og ljóð Pablo Neruda.
|
 |
Hummel er þekkt nafn um allan heim af fólki sem hugsar um hágæða handunna muni af börnum gerða úr vönduðu postulíni. Það var fransiskureglununnan Maria Innocentia Hummel sem hannaði þessa fallegu muni af æskuljóma barna.
Fyrst um sinn voru þetta einungis um teikningar en árið 1935 voru fyrstu stytturnar framleiddar. Þær hafa síðan þá unnið hug og hjörtu fagurkera og safnara um allan heim.
|
 |
Axcent er skandinavískt fyrirtæki stofnað 1996 í Stokkhólmi. Þetta er hönnunarfyrirtæki sem leggur upp með að bjóða skandinavíska gæðahönnun á frábæru verði. Úrin þeirra einkennast af skandinavískri smart en látlausri hönnun sem nýtur mikilla vinsælda víða m.a. í Hollywood. Úrin koma aðallega á leðurólum.
|
 |
Bandarísk tískuúr á góðu verði sem hafa reynst mjög vel.
Úrin fylgja tískustraumum og módelin eru bæði á leðurólum og keðjum. |
 |
DKNY eru skammstöfun fyrir tískumerkið Donna Karan New York. Þetta er heimsfrægt merki í tískuheiminum sem nú hefur látið framleiða fyrir sig tískuúr sem í miklu úrvali á góðu verði. DKNY úrin fylgja nýjustu tískustraumum og koma reglulega með nýjar týpur á bæði keðjum og leðurólum.. |
 |
Dolce & Gabbana er frægt tískumerki sem hefur teygt anga sína inn í heim úramerkjana. Þetta eru tískuúr á góðu verði og mörg þeirra eru augnakonfekt fyrir þá sem vilja glys og glingur. |
 |
Töff tískuúr á góðu verði, oft talað um gallabuxnaúrin!
Flest módelin eru stór og koma bæði á leðurólum og keðjum. |
 |
Svissnesk hönnun með japönsku úrverki og því á góðu verði.
Smart ódýr úr sem fylgja tískustraumum. Verð frá kr. 2200 |
| |
Candino eru svissnesk klassískt úr á góðu verði. Koma aðallega á keðjum og í týpum fyrir bæði dömur og herra. Verð frá kr. 12.000 |
| |
|