Forsíða
Vörur
Vörumerkin okkar
Góð ráð
Um okkur
Starfsmenn
Kaupum gull
Um okkur

Jón & Óskar er alhliða úra-, skartgripa- og gjafavöruverslun sem var stofnsett árið 1971. Verslunin er staðsett að Laugavegi 61 og er ein stærsta og glæsilegasta úra- og skartgripaverslun á Íslandi.

Eigendur og stofnendur fyrirtækisins eru Jón Sigurjónsson, gullsmíðameistari og Óskar Óskarsson, úrsmíðameistari.

Verslunin var fyrst til húsa að Laugavegi 70 í 50 fermetra hálf niðurgröfnu rými en þegar reksturinn fór að sprengja utan af sér þessa fáu fermetra stækkuðu þeir verslunina til austurs yfir í húsið við hliðina á.  Það var síðan árið 1995 sem verslunin flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði alls xx fermetrar að Laugavegi 61 og varð þar með stærsta úra-og skartgripaverslun landsins. 

Í versluninni eru félagar í fagfélögum úra og gullsmíða og bjóða vandaða og persónulega þjónustu.  Þeir hafa umboð fyrir fjölda vörumerka en milliliðalaus viðskipti tryggja bestu verðin.

Verslunin er ein af rótgrónustu verslunum í miðbænum og hefur 36 ára reynslu og þekkingu fram að færa.

Í versluninni er boðið upp á notalega og góða aðstöðu og sérstakt herbergi til að skoða trúlofunar-og giftingarhringa í ró og næði. 

Þeir sem ekki hafa tök á að komast í verslunina geta síðan pantað vörur í gegnum netið eða síma og fengið þær sendar með pósti.

Boðið er upp á greiðslukortaviðskipti, léttgreiðslur og raðgreiðslur og tax-free fyrir þá sem eru að fara úr landi.

Lágmarksábyrgð á vörum er tvö ár en margar vörur eru með víðtækari ábyrgð og er það þá sérstaklega tekið fram.

Trúlofunarhornið.                         Hringarnir valdir í ró og næði              mynd frá Laugavegi

 

  

             Úr verslun okkar á Laugavegi
  

  ´           Úr verslun okkar á Laugavegi

  

                Úr verslun okkar í Kringlunni
 

                   Úr verslun okkar í Smáranum

Skráðu þig á póstlista
Netfang: *
Nafn: *
Jón & Óskar sf. - Kt. 501290-1149 - Laugavegi 61 - 101 Reykjavík - netfang jonogoskar@jonogoskar.is
Skartgripadeild - Sími: 552-4910 - Fax: 551-4910
Úra-og postulínsdeild - Sími: 552-4930 - Fax: 552-4950